Hádegisfyrirlestur: Vor og sumar í garðinum
Miðvikudaginn 11. maí 2016 kl. 12:00-12:50 verður hádegisfyrirlestur í húsnæði Ráðgjafarþjónustunnar.
Guðríður Helgadóttir, garðyrkjufræðingur mun fjallað er um helstu verkefni sem þarf að sinna að vori og sumri í garðinum og farið yfir hvernig hægt sé að vinna sér í haginn þannig að góður tími gefist til að njóta garðsins.
Boðið verður upp á ilmandi brauð frá Brauðhúsinu í Grímsbæ og smjör og ost frá Mjólkursamsölunni.
Ráðgjafarþjónusta Krabbameinsfélagsins er að Skógarhlíð 8 í Reykjavík. Opið virka daga kl. 9:00-16:00. Fagfólk svarar í síma 800 4040 kl. 13:00-15:00.