Hádegisfyrirlestur: Pílagrímsganga
Miðvikudaginn 6. júni 2018 kl. 12:00-12:50 verður hádegisfyrirlestur í húsnæði Ráðgjafarþjónustunnar.
Fyrirlesari er Hulda Guðmundsdóttir skógar- og kirkjubóndi á Fitjum í Skorradal. Hún ætlar að kynna hina árlega pílagrímsgöngu í lok júni um Síldarmannagötur frá Hvalfirði yfir í Skorradal.
Boðið verður upp á ilmandi brauð frá Brauðhúsinu í Grímsbæ og viðbit frá Mjólkursamsölunni.
Ráðgjafarþjónusta Krabbameinsfélagsins er að Skógarhlíð 8 í Reykjavík. Opið mánudaga til miðvikudaga kl. 9-16, fimmtudaga kl.9-18 og föstudaga kl.9-14. Fagfólk svarar í síma 800 4040 kl. 13-15