Hádegis­fyrirlestur: Pílagríms­ganga
Miðvikudaginn 7. júní 2017 kl. 12:00-12:50 verður hádegisfyrirlestur í húsnæði Ráðgjafarþjónustunnar.
Fyrirlesari er Hulda Guðmundsdóttir skógar- og kirkjubóndi á Fitjum í Skorradal. Hún ætlar að kynna hina árlegu pílagrímsgöngu í lok júní um Síldarmannagötur frá Hvalfirði yfir í Skorradal.
Boðið verður upp á ilmandi brauð frá Brauðhúsinu í Grímsbæ og viðbit frá Mjólkursamsölunni.
Ráðgjafarþjónusta Krabbameinsfélagsins er að Skógarhlíð 8 í Reykjavík. Opið virka daga kl. 9:00-16:00. Fagfólk svarar í síma 800 4040 kl. 13:00-15:00.