Hádegisfyrirlestur: Mataræði í veikindum

  • 18.10.2017, 12:00 - 12:50


Miðvikudaginn 18. október 2017 kl.12:00- 12:50 verður hádegisfyrirlestur í húsnæði Ráðgjafarþjónustunnar um mataræði í veikindum.

Jóhanna Torfadóttir næringarfræðingur og doktor í lýðheilsuvísindum mun fjalla    um mataræði í veikindum. Farið verður yfir helstu atriði í næringu sem talin eru hafa góð áhrif. 

Boðið verður upp á ilmandi brauð frá Brauðhúsinu í Grímsbæ, te frá Tefélaginu og smjör/ost frá Mjólkursamsölunni. 

Ráðgjafarþjónusta Krabbameinsfélagsins er að Skógarhlíð 8 í Reykjavík. Opið mánudaga til miðvikudaga kl. 9-16, fimmtudaga kl.9-18 og föstudaga kl.9-14. Fagfólk svarar í síma 800 4040 kl. 13-15.


Var efnið hjálplegt?