Hádegisfyrirlestur: Má maður aldrei neitt?
Miðvikudaginn 19. september kl. 12:00-12:50 verður hádegisfyrirlestur í húsnæði Ráðgjafarþjónustunnar.
Sigrún Elva Einarsdóttir fræðslufulltrúi Krabbameinsfélagsins fjallar um hvernig hægt er að draga úr líkunum á því að fá krabbamein.
Boðið verður upp á ilmandi brauð frá Brauðhúsinu í Grímsbæ, te frá Tefélaginu og viðbit frá Mjólkursamsölunni.
Ráðgjafarþjónusta Krabbameinsfélagsins er að Skógarhlíð 8 í Reykjavík. Opið mánudaga til miðvikudaga kl. 9-16, fimmtudaga kl. 9-18 og föstudaga kl. 9-14. Fagfólk svarar í síma 800 4040 kl. 13-15.