Hádegisfyrirlestur: Lítið en samt svo stórt
Steinar B. Aðalbjörnsson íþrótta- og næringafræðingur Krabbameinsfélagsins mun fjalla um hvernig við getum byggt upp heilbrigðara samband við mat með því að breyta litlu hlutunum, einum og einum í einu. Hann fer yfir tækifærin til bætinga sem eru lítil en samt svo stór og hvernig það getur haft mikil áhrif og orðið stökkpallur fyrir heilbrigðari lífsstíl.
Hádegiserindið er 21. september kl. 12:00-13:00 í húsnæði Krabbameinsfélagsins Skógarhlíð 8, 1. hæð. Boðið upp á léttar veitingar. Þátttaka ókeypis og öll velkomin.
- Skráning á radgjof@krabb.is eða í síma 800 4040.
Kaffi á könnunni í notalegu umhverfi, verið hjartanlega velkomin.