Hádegisfyrirlestur: Lesið úr þremur bókum

  • 14.12.2016, 12:00 - 12:50, Krabbameinsfélagið Skógarhlíð 8

Miðvikudaginn 14. desember 2016 kl. 12:00-12:50 verður hádegisfyrirlestur með breyttu sniði en lesið verður úr nýjum bókum.

Þórarinn Eldjárn les úr bók sinni Þættir af séra Þórarinum og fleirum, Einar Kárason les úr bók sinni Passíusálmarnir og lesið verður úr bók Steinunnar Sigurðardóttur Heiða, fjalldalabóndinn.

Boðið verður upp á heitt súkkulaði, ilmandi brauð frá Brauðhúsinu í Grímsbæ og jólate frá Tefélaginu.

Ráðgjafarþjónusta Krabbameinsfélagsins er að Skógarhlíð 8 í Reykjavík. Opið virka daga kl. 9:00-16:00. Fagfólk svarar í síma 800 4040 kl. 13:00-15:00.


Var efnið hjálplegt?