Hádegisfyrirlestur: Kynning á Qi-gong heilsuæfingum

  • 13.1.2016, 12:00 - 12:50, Krabbameinsfélagið Skógarhlíð 8

Miðvikudaginn 13. janúar 2016 kl. 12:00-12:50 verður hádegisfyrirlestur í húsnæði Ráðgjafarþjónustunnar.

Þóra Halldórsdóttir fjallar um hugmyndafræðina á bak við Qi-gong heilsuæfingar (The Eight Pieces of Brocade, “Átta frábærar æfingar”) en þær byggjast á öndun, teygjum og styrkjandi hreyfingum. Nýtt námskeið Þóru hefst 19.janúar.

Boðið verður upp á ilmandi brauð frá Brauðhúsinu í Grímsbæ, te frá Tefélaginu og viðbit frá Mjólkursamsölunni.


Var efnið hjálplegt?