Hádegisfyrirlestur: Kvöl á sá sem völ á

  • 30.3.2016, 12:00 - 12:50, Krabbameinsfélagið Skógarhlíð 8

Miðvikudaginn 30. mars 2016 kl. 12:00-12:50 verður Axel F. Sigurðsson hjartalæknir með hádegisfyrirlestur um hvernig hver og einn beri ábyrgð á sínu lífi og ákveði sér sinn lífsstíl.

Við erum öll ólík og þurfum því ólíkar áherslur þegar kemur að mataræði og lífsstíl. Með góðri upplýsingagjöf og fræðslu er hægt að auka þekkingu okkar og þannig auðvelda val á leiðum í þeim efnum.

Boðið verður upp á ilmandi brauð frá Brauðhúsinu í Grímsbæ og te frá Tefélaginu.

Ráðgjafarþjónusta Krabbameinsfélagsins er að Skógarhlíð 8 í Reykjavík.
Opið virka daga kl. 9:00-16:00. Fagfólk svarar í síma 800 4040 kl. 13:00-15:00.
Netfang: radgjof@krabb.is.


Var efnið hjálplegt?