Hádegisfyrirlestur: Hvað er ráðlagt að borða
Miðvikudaginn 14. mars 2018 kl. 12:00-12:50 verður hádegisfyrirlestur í húsnæði Ráðgjafarþjónustunnar.
Hólmfríður Þorgeirsdóttir næringarfræðingur hjá Embætti landlæknis mun fjalla um opinberar ráðleggingar um mataræði, Skráargatið og Af bestu lyst. Allir velkomnir !
Boðið verður upp á ilmandi brauð frá Brauðhúsinu í Grímsbæ, te frá Tefélaginu og viðbit frá Mjólkursamsölunni.
Hægt verður að fylgjast með beinni útsendingu hér.
Ráðgjafarþjónusta Krabbameinsfélagsins er að Skógarhlíð 8 í Reykjavík. Opið mánudaga til miðvikudaga kl. 9-16, fimmtudaga kl.9-18 og föstudaga kl.9-14. Fagfólk svarar í síma 800 4040 kl. 13-15.