Hádegisfyrirlestur: Heilsuvera.is - Mínar síður

  • 18.4.2018, 12:00 - 12:50, Ráðgjafarþjónustan

Miðvikudaginn 18. april 2018 kl. 12:00-12:50 er hádegisfyrirlestur í húsnæði Ráðgjafarþjónustunnar. 

Guðrún Auður Harðardóttir og Ingi Steinar Ingason frá embætti landlæknis verða með kynningu á því hvernig hægt er að nýta sér vefinn heilsuvera.is til gagns og þæginda.

Boðið verður upp á ilmandi brauð frá Brauðhúsinu í Grímsbæ, te frá Tefélaginu og viðbit frá Mjólkursamsölunni. 

Ráðgjafarþjónusta Krabbameinsfélagsins er að Skógarhlíð 8 í Reykjavík. Opið mánudaga til miðvikudaga kl. 9-16, fimmtudaga kl.9-18 og föstudaga kl.9-14. Fagfólk svarar í síma 800 4040 kl. 13-15. 




Var efnið hjálplegt?