-
Mynd: Master isolated images at FreeDigitalPhotos.net
Hádegisfyrirlestur: Hefur hugsun áhrif á heilsu?
Miðvikudaginn 27. apríl 2016 kl. 12:00-12:50 verða Lára G. Sigurðardóttir læknir og fræðslustjóri krabbameinsfélagsins og Gunnar Hersveinn rithöfundur og heimspekingur með hádegisfyrirlestur.
Gjarnan er litið á hug og líkama sem aðskilin fyrirbæri en hvað segja vísindin? Getur jákvæð og skapandi hugsun haft áhrif á heilsu?
Boðið verður upp á ilmandi brauð frá Brauðhúsinu í Grímsbæ og smjör og ostur frá Mjólkursamsölunni.
Ráðgjafarþjónusta Krabbameinsfélagsins er að Skógarhlíð 8 í Reykjavík. Opið virka daga kl. 9:00-16:00. Fagfólk svarar í síma 800 4040 kl. 13:00-15:00.