Hádegis­fyrir­lestur: Fysio Flow (hreyfi­flæði)

  • 5.9.2018, 12:00 - 12:50, Krabbameinsfélagið Skógarhlíð 8

Miðvikudaginn 5. september 2018 kl. 12:00-12:50 verður hádegisfyrirlestur í húsnæði Ráðgjafarþjónustunnar.

Heiðbjört Tíbrá Kjartansdóttir sjúkraþjálfari kynnir hugmyndafræði Fysio flow þar sem áhersla er lögð á að hreyfa bandvefi líkamans með rólegum teygjum og æfingum. Hentar m.a.þeim sem glíma við verki, streitu og stífleika.  Ef áhugi er fyrir hendi verður boðið upp á námskeið í kjölfarið.

Boðið verður upp á ilmandi brauð frá Brauðhúsinu í Grímsbæ, te frá Tefélaginu og viðbit frá Mjólkursamsölunni.

Ráðgjafarþjónusta Krabbameinsfélagsins er að Skógarhlíð 8 í Reykjavík. Opið mánudaga til miðvikudaga kl. 9-16, fimmtudaga kl. 9-18 og föstudaga kl. 9-14. Fagfólk svarar í síma 800 4040 kl. 13-15.


Var efnið hjálplegt?