Hádegisfyrirlestur: Áhrif veikinda hjá körlum á kynlíf og kynlöngun
Miðvikudaginn 2. mars 2016 kl. 12:00-12:50 verður Áslaug Kristjánsdóttir hjúkrunar-og kynfræðingur með hádegisfyrirlestur.
Kynlíf er misstór þáttur í lífi hvers og eins og einstaklingar bregðast á mismunandi hátt við breytingum þar að lútandi. Að vera kynvera snýst ekki eingöngu um kynlífsathafnir heldur líka um viðhorf og tilfinningar.
Boðið verður upp á ilmandi brauð frá Brauðhúsinu í Grímsbæ, te frá Tefélaginu og viðbit frá Mjólkursamsölunni.
Ráðgjafarþjónusta Krabbameinsfélagsins er að Skógarhlíð 8 í Reykjavík.
Opið virka daga kl. 9:00-16:00. Fagfólk svarar í síma 800 4040 kl. 13:00-15:00.
Netfang: radgjof@krabb.is.