Hádegisfyrirlestur: Áhrif veikinda á kynlíf og kynlöngun
Miðvikudaginn 11. apríl 2018 kl. 12:00-12:50 verður Áslaug Kristjánsdóttir hjúkrunar- og kynfræðingur með hádegisfyrirlestur í Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins, Skógarhlíð 8.
Kynlíf er misstór þáttur í lífi hvers og eins og einstaklingar bregðast á mismunandi hátt við breytingum þar að lútandi. Að vera kynvera snýst ekki eingöngu um kynlífsathafnir heldur líka um viðhorf og tilfinningar.
Boðið verður upp á ilmandi brauð frá Brauðhúsinu í Grímsbæ, te frá Tefélaginu og viðbit frá Mjólkursamsölunni.
Ráðgjafarþjónusta Krabbameinsfélagsins er að Skógarhlíð 8 í Reykjavík. Opið mánudaga til miðvikudaga kl. 9-16, fimmtudaga kl. 9-18 og föstudaga kl. 9-14. Fagfólk svarar í síma 800 4040 kl. 13-15.