Hádegisfyrirlestur: Núvitund og samkennd
Miðvikudaginn 30. janúar 2018 kl. 12:00-12:50 verður hádegisfyrirlestur í húsnæði Ráðgjafarþjónustunnar.
Margrét Bárðardóttir sálfræðingur, fjallar um þrjá þætti sem snúa að samkennd; núvitund, sameiginlega mennsku og góðvild í eigin garð. Saman geta þessir þættir gert okkur sterk á erfiðum stundum.
Sérstakt námskeið; Núvitund og samkennd verður kynnt bráðlega.
Allir eru velkomnir og ekki er þörf á að skrá sig. Þátttaka er ókeypis.
Þeir sem ekki eiga heimangengt geta fylgst með beinni útsendingu í streymisveitu Krabbameinsfélagsins: https://livestream.com/krabb/hadegi-nuvitund-samkennd
Boðið verður upp á ilmandi brauð frá Brauðhúsinu í Grímsbæ, te frá Tefélaginu og smjör/ost frá Mjólkursamsölunni.
Ráðgjafarþjónusta Krabbameinsfélagsins er að Skógarhlíð 8 í Reykjavík. Opið mánudaga til miðvikudaga kl. 9-16, fimmtudaga kl. 9-18 og föstudaga kl. 9-14. Fagfólk svarar í síma 800 4040 kl. 13-15.