Hádegis­fyrir­lestur: Hamingjan

  • 14.2.2018, 12:00 - 12:50, Krabbameinsfélagið Skógarhlíð 8

Miðvikudaginn 14. febrúar 2018 kl. 12:00-12:50 verður hádegisfyrirlestur í húsnæði Ráðgjafarþjónustunnar. 

  • Erum við að keppast við að leita að hamingjunni? 
  • Getum við aukið hamingju okkar og þá hvernig? 
  • Hvað með hamingjuna þegar erfiðleikar steðja að? 
  • Hvað einkennir hamingjusamt fólk?        

Anna Lóa Ólafsdóttir, náms- og starfsráðgjafi með diplóma í sálgæslu og eigandi Hamingjuhornsins fjallar um þessa þætti og fleira í erindi sínu um hamingjuna.

Boðið verður upp á ilmandi brauð frá Brauðhúsinu í Grímsbæ, te frá Tefélaginu og viðbit frá Mjólkursamsölunni.

Ráðgjafarþjónusta Krabbameinsfélagsins er að Skógarhlíð 8 í Reykjavík. Opið mánudaga til miðvikudaga kl. 9-16, fimmtudaga kl. 9-18 og föstudaga kl. 9-14. Fagfólk svarar í síma 800 4040 kl. 13-15.


Var efnið hjálplegt?