Hádegisfyrirlestur: Hamingjan
Miðvikudaginn 14. febrúar 2018 kl. 12:00-12:50 verður hádegisfyrirlestur í húsnæði Ráðgjafarþjónustunnar.
- Erum við að keppast við að leita að hamingjunni?
- Getum við aukið hamingju okkar og þá hvernig?
- Hvað með hamingjuna þegar erfiðleikar steðja að?
- Hvað einkennir hamingjusamt fólk?
Anna Lóa Ólafsdóttir, náms- og starfsráðgjafi með diplóma í sálgæslu og eigandi Hamingjuhornsins fjallar um þessa þætti og fleira í erindi sínu um hamingjuna.
Boðið verður upp á ilmandi brauð frá Brauðhúsinu í Grímsbæ, te frá Tefélaginu og viðbit frá Mjólkursamsölunni.
Ráðgjafarþjónusta Krabbameinsfélagsins er að Skógarhlíð 8 í Reykjavík. Opið mánudaga til miðvikudaga kl. 9-16, fimmtudaga kl. 9-18 og föstudaga kl. 9-14. Fagfólk svarar í síma 800 4040 kl. 13-15.