Golf í Bakkakoti: Karlarnir og kúlurnar
Karlarnir og kúlurnar er verkefni þar sem körlum sem fengið hafa krabbamein er gefið tækifæri til að styrkja sig og leika sér með því að æfa golfsveifluna í fallegu umhverfi, njóta samvista við golffélaga, læra eitthvað nýtt og/eða viðhalda fyrri færni.
Leikið verður að Bakkakoti í Mosfellsbæ þriðjudaginn 18. september, mæting kl.09:30.
Jón Karlsson PGA golfkennari mun leiðbeina þátttakendum um réttu golfsveifluna áður en haldið er út á golfvöll (9. holur). Leikið verður þriggja manna Texas Scramble.
Tólf menn fá tækifæri til að taka þátt í þessu verkefni sér að kostnaðarlausu. Boðið verður upp á léttar veitingar eftir hringinn.
Umsóknir þarf að senda til Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins fyrir 10. september með tölvupósti á radgjof@krabb.is eða í síma 800-4040 .
Fyrstur kemur, fyrstur fær!! Erum búin að panta gott veður!
Verkefnið er á vegum Krabbameinsfélags Íslands, Góðra hálsa, Frískra manna og Krafts.