Góðir hálsar - rabbfundur
Góðir hálsar, stuðningshópur um krabbamein í blöðruhálskirtli, verða með mánaðarlegan rabbfund sinn í húsi Krabbameinsfélagsins að Skógarhlíð 8 í Reykjavík miðvikudaginn 2. maí kl. 17.00.
Gestur fundarins verður Davíð Ingason lyfjafræðingur. Davíð ætlar að kynna erlent prógram sem er sérsniðið fyrir þá sem eru í hormónameðferð en hentar líka öðrum. Einnig mun hann segja frá nýjungum í lyfjamálum.
Fundurinn er einkum ætlaður þeim sem greinst hafa með krabbamein í blöðruhálskirtli og aðstandendum þeirra. Kaffi verður á könnunni.