• Góðir hálsar

Góðir hálsar - rabb­fundur

  • 4.4.2018, 17:00 - 19:00, Krabbameinsfélagið Skógarhlíð 8

Góðir hálsar, stuðningshópur um krabbamein í blöðruhálskirtli, verða með mánaðarlegan rabbfund sinn í húsi Krabbameinsfélagsins að Skógarhlíð 8 í Reykjavík miðvikudaginn 4. apríl kl. 17.00. 

Magnús Helgi Ólafsson, íþróttakennari, sjúkraþjálfari og vinnuvistfræðingur ætlar að spjalla við fundargesti um hvernig hann hefur tekist á við veikindi sín (krabbamein í brisi og lungum).

Fundurinn er einkum ætlaður þeim sem greinst hafa með krabbamein í blöðruhálskirtli og aðstandendum þeirra. Kaffi verður á könnunni.


Var efnið hjálplegt?