Góðir hálsar - krabbamein og næring

  • 2.11.2016, 17:00 - 18:00, Krabbameinsfélagið Skógarhlíð 8

Góðir hálsar, stuðningshópur um krabbamein í blöðruhálskirtli, verða með mánaðarlegan rabbfund sinn í húsi Krabbameinsfélagsins að Skógarhlíð 8 í Reykjavík miðvikudaginn 2. nóvember kl. 17:00.

Gestur fundarins er Helga Sigurðardóttir næringarráðgjafi. Helga ætlar að ræða um krabbamein og næringu.

Fundurinn er einkum ætlaður þeim sem greinst hafa með krabbamein í blöðruhálskirtli og aðstandendum þeirra.

Kaffi verður á könnunni.


Var efnið hjálplegt?