Góðir hálsar - Krabbamein og kynlíf

  • 1.11.2017, 17:00 - 19:00, Krabbameinsfélagið Skógarhlíð 8

Góðir hálsar, stuðningshópur um krabbamein í blöðruhálskirtli, verða með mánaðarlegan rabbfund sinn í húsi Krabbameinsfélagsins að Skógarhlíð 8 í Reykjavík miðvikudaginn 1. nóvember kl. 17:00. 

Gestur fundarins verður Áslaug Kristjánsdóttir hjúkrunar- og kynfræðingur.  Áslaug mun fjalla um áhrif veikinda hjá körlum á kynlíf og kynlöngun.

Fundurinn er einkum ætlaður þeim sem greinst hafa með krabbamein í blöðruhálskirtli og aðstandendum þeirra. Kaffi verður á könnunni.


Var efnið hjálplegt?