Góðir hálsar – erindi um einbeitingu og minni

  • 5.10.2016, 17:00 - 18:00, Krabbameinsfélagið Skógarhlíð 8

Góðir hálsar, stuðningshópur um krabbamein í blöðruhálskirtli, verða með mánaðarlegan rabbfund sinn í húsi Krabbameinsfélagsins að Skógarhlíð 8 í Reykjavík miðvikudaginn 5. október kl. 17.00.

Gestur fundarins er Þorri Snæbjörnsson sálfræðingur hjá Krafti og Ráðgjafarþjónustunni. Þorri ætlar að ræða þær breytingar sem geta orðið í kjölfar veikinda er varða einbeitingu og minni.

Fundurinn er einkum ætlaður þeim sem greinst hafa með krabbamein í blöðruhálskirtli og aðstandendum þeirra. Kaffi verður á könnunni. 


Var efnið hjálplegt?