Globeathon ráðstefna um krabbamein í kvenlíffærum

  • 8.9.2016, 17:00 - 18:30, Krabbameinsfélagið Skógarhlíð 8

Globeathon  er alþjóðlegt átak til að vekja athygli á krabbameini í kvenlíffærum. Af því tilefni efnir Líf styrktarfélag og Krabbameinsfélagið til ráðstefnu.

Ráðstefnan verður haldin í húsnæði Krabbameinsfélagsins að Skógarhlíð 8, kl. 17:00 -18:30 fimmtudaginn 8. september 2016.

Dagskrá ráðstefnunnar:

Kl. 17:00 Setning ráðstefnunar og kynning á  Globeathon hugmyndinni. Sigrún Arnardóttir læknir og formaður Lífs styrktarfélags.

Kl. 17:05 Bólusetning gegn leghálskrabbameini. Kristján Oddsson yfirlæknir krabbameinsfélagsins.

Kl. 17:20 Krabbamein í legbol og eggjastokkum. Karl ÓLafsson krabbameinslæknir í kvensjúkdómum.

Kl. 17:35 Dagur í lyfjameðferð. Þórunn Sævarsdóttir og Hrefna Magnúsdóttir hjúkrunarfræðingar á göngudeild krabbameinssjúklinga.

Kl. 17:50 Að missa hárið. Reynslusaga. Guðrún Hrund Sigurðardóttir.

Kl. 18:10 Pallborðsumræður. Spurningar og svör

Kl. 18:30 Ráðstefnulok

Allir velkomnir!

Nánari upplýsingar veita Sigrún Arnardóttir á netfangið sigrunarnar@simnet.is og Sigurlaug Gissurardóttir á netfangið sigurlaug@krabb.is.


Var efnið hjálplegt?