Fyrirlestur: Hver er réttur minn í veikindum?

  • 22.5.2018, 17:15 - 18:30, Krabbameinsfélagið Skógarhlíð 8

Næsti fyrirlestur i fyrirlestaröð Krafts „Ungt fólk og krabbamein“ verður haldinn þriðjudaginn 22. maí kl 17.15 í húsakynnum Krafts, Krabbameinsfélaginu, Skógarhlíð 8, Reykjavík.

Arnar Þór Sveinsson, hagfræðingur hjá velferðarráðuneytinu, fjallar um greiðsluþátttöku sjúklinga í heilbrigðiskerfinu og Guðrún Björg Elíasdóttir, lyfjafræðingur og deildarstjóri lyfjadeildar hjá Sjúkratryggingum Íslands, fjallar um greiðsluþátttöku sjúklinga í lyfjakaupum.

Gunnjóna Una Guðmundsdóttir, félagsráðgjafi, fjallar um fjármál, félagsleg réttindi, endurhæfingu og önnur úrræði sem í boði eru fyrir krabbameinsgreinda.

Allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir.

Fyrirlestrinum verður streymt beint á netinu.


Var efnið hjálplegt?