Fyrir börnin! Nám­skeið í hug­leiðslu og sjálfs­styrkingu 1/3

  • 28.11.2019, 15:30 - 17:00, Krabbameinsfélagið Skógarhlíð 8

Hugleiðslu og sjálfstyrkingarnámskeið fyrir börn þar sem náinn aðstandandi hefur greinst með krabbamein hefst fimmtudaginn 28. nóv kl. 15:30

Hugleiðslan og þær aðferðir sem kenndar verða í tímunum miða að því að skapa innra jafnvægi, styrkja sjálfsmyndina, efla sjálfskærleika og hjálpa barninu að slaka á.

Fjölbreyttar aðferðir verða notaðar á borð við:

  • Myndrænar, leiddar hugleiðslur
  • Öndunaræfingar
  • Slökunaræfingar
  • Notkun táknrænna lita í tengslum við vinnu með tilfinningar
  • Tjáning í gegnum það að teikna/mála og skrifa
  • Notkun ýmissa fylgihluta til að virkja ímyndunaraflið
  • Uppbyggjandi samræður

Leiðbeinandi er Stefanía Ólafsdóttir, tónlistarmaður, grunnskólakennari og hugleiðsluleiðbeinandi. Hún á langa reynslu að baki í vinnu með börn á ýmsum vettvangi og hefur í mörg ár kennt hugleiðslu fyrir fólk á öllum aldursskeiðum. Hún stundar nám í alþjóðlega viðurkenndu hugleiðslunámi fyrir börn og byggir námskeiðið á þeim grunni.

Námskeiðið er fyrir börn 8-12 ára og hefst fimmtudaginn 28. nóv kl. 15:30-17:00. Námskeiðið verður vikulega í 3 skipti á sama tíma.

Hafðu samband í síma 800 4040 eða sendu póst á radgjöf@krabb.is til að fá frekari upplýsingar um tímsetningar og námskeiðið eða til að skrá barn til þátttöku.

Ráðgjafarþjónusta Krabbameinsfélagsins er að Skógarhlíð 8 í Reykjavík. Opið mánudaga til miðvikudaga kl. 9-16, fimmtudaga kl. 9-18 og föstudaga kl. 9-14.
Fagfólk svarar í síma 800 4040 kl. 10-15.





Var efnið hjálplegt?