Fjarnámskeið: Núvitund og samkennd á Zoom (4 af 5)
Á námskeiðinu verða kenndar ýmsar grunnæfingar í núvitund og samkennd, auk fræðslu, umræðna og heimaverkefna. Við lærum að tileinka okkur leiðir til að sýna okkur meiri mildi og skilning þegar eitthvað bjátar á í stað gagnrýni.
Námskeiðið hófst 11. apríl og er vikulega í fimm skipti á þriðjudögum kl. 13:00-15:00. Ekkert þátttökugjald.
Leiðbeinandi er Anna Dóra, sálfræðingur (sérfræðingur í klínískri sálfræði), félagsráðgjafi og núvitundarleiðbeinandi.
- Námskeiðið er ætlað þeim sem hafa greinst með krabbamein og aðstandendum.
- Skráning á radgjof@krabb.is eða í síma 800 4040 .