Fjarnámskeið: HAM við svefnleysi (2 af 5)
Átt þú erfitt með að festa svefn á kvöldin? Vaknar upp á nóttunni og átt erfitt með að sofna á ný? Notar þú svefnlyf að staðaldri? Þá gæti þetta verið námskeið fyrir þig!
Fjarnámskeiðið hófst 3. október og er vikulega í fimm skipti á þriðjudögum kl. 13:00-14:30. Þátttakendur fá sendar nánari upplýsingar.
Leiðbeinandi er Inga Rún Björnsdóttir sálfræðingur hjá Betri svefni.
- Skráning á radgjof@krabb.is eða í síma 800 4040.
- Námskeiðið er ætlað þeim sem greinst hafa með krabbamein og aðstandendum.