Fjarnámskeið: Ertu með bjúg á handlegg?
Markmiðið námskeiðsins er að auka þekkingu og færni til að bregðast við sogæðabjúg. Áhersla verður lögð á verklegar æfingar og sjálfsnudd.
Við verðum á Zoom þannig að allir geta tekið þátt hvar sem þeir eru á landinu. Eina sem þarf er að vera tengdur tölvu sem hefur myndavél og hljóð. Þátttakendur fá sendan tölvupóst með nánari leiðbeiningum.
Námskeiðið hefst 25. nóvember 2020 og er vikulega í tvö skipti á miðvikudögum
kl. 16:00-18:00. Ekkert þátttökugjald.
Leiðbeinendur eru Marjolein Roodbergen og Heiðbjört Kjartansdóttir sjúkraþjálfarar.
- Skráning á radgjof@krabb.is eða í síma 800 4040.
Ráðgjafarþjónusta Krabbameinsfélagsins er að Skógarhlíð 8 í Reykjavík og er opin virka daga frá kl. 9-16. Símaráðgjöf er á opnunartíma í síma 800 4040. Einnig er hægt er að senda fyrirspurnir á radgjof@krabb.is og er þeim svarað eins fljótt og hægt er.