Stuðnings­ fulltrúa­námskeið: Ertu góð­hjart­aður reynslu­bolti sem vilt nýta reynslu þína öðrum til góða?

  • 25.10.2021, 17:00 - 21:00, Krabbameinsfélagið Skógarhlíð 8
  • 1.11.2021, 17:00 - 21:00, Krabbameinsfélagið Skógarhlíð 8

Stuðningsfulltrúanámskeið fyrir verðandi stuðningsfulltrúa í Stuðningsnetinu verður haldið í tveimur pörtum mánudagana 25.október og 1.nóvember, frá klukkan 17:00 til 21:00. Námskeiðið verður haldið í sal Ráðgjafarþjónustunnar á fyrstu hæð í húsnæði Krabbameinsfélagsins, Skógarhlíð 8.

Námskeiðið er bæði ætlað þeim sem greinst hafa með krabbamein og hafa lokið við krabbameinsmeðferð sem og aðstandendum, sem vilja styðja við einstaklinga sem lenda í svipuðum sporum.

Til að taka þátt á námskeiðinu þarf að skrá sig á netfanginu salfraedingur@kraftur.org eða með því að fylla út þetta skráningarform. Boðið verður upp á kvöldmat bæði kvöldin í boði Krafts og Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins sem starfrækja Stuðningsnetið.

  • Frekari upplýsingar má sjá hér.

„Það sem hjálpaði mest var að hitta aðra sem höfðu lent í svipuðum sporum, Kraftur bjargaði geðheilsunni minni….“

26 ára félagsmaður sem greindist með ristilkrabbamein


Var efnið hjálplegt?