Dagskrá Ráðgjafarþjónustunnar 21.-25. ágúst
Mánudagur 21. ágúst
9:00-16:00 Opin skrifstofa frá mánudegi til fimmtudags.
Þriðjudagur 22. ágúst
13:00-15:00 Viljum minna á símaráðgjöf okkar í síma 800 4040 alla virka daga.
Miðvikudagur 23. ágúst
11:30-12:00 Hópslökun fyrir krabbameinsgreinda og aðstandendur þeirra. Verið velkomin.
13:00-13:30 Samtal um réttindi fólks með krabbamein. Allir velkomnir.
Fimmtudagur 24. ágúst
13:00-15:00 Handavinnu- og bókakaffið. Láttu sjá þig.
13:00-15:00 Styrkur. Viðtalstími. Sími 540 1911.
Föstudagur 25. ágúst
13:00-14:00 Viðtalstími sálfræðings.
Djúpslökun
Lilja Jónasdóttir hjúkrunarfræðingur mun koma til okkar í Ráðgjafarþjónustuna og leiða slökun.
Lilja hefur í tvo áratugi veitt sjúklingum, aðstandendum og starfsfólki á Landspítala háskólasjúkrahúsi slökunar- og dáleiðslumeðferð. Hún er einnig höfundur tveggja slökunardiska.
Allir velkomnir meðan húsrými leyfir, engin þörf á skráningu, mæta og njóta. Ekkert þátttökugjald.
Minnisnámskeið
Minnisnámskeið verður í húsnæði Ráðgjafarþjónustunnar. Námskeiðið er ætlað þeim sem hafa áhyggjur af minni sínu í kjölfar veikinda en einnig þeim sem vilja fræðast um einbeitingu og minni og læra að nýta sér mismunandi minnistækni.
Mánudagana 18. og 25. september kl.14:00-15:15.
Leiðbeinandi er Þorri Snæbjörnsson sálfræðingur.
Skráning radgjof@krabb.is eða í síma 800 4040 . Ekkert þátttökugjald.