Dagskrá Ráðgjafarþjónustu Krabbameins­félagsins 5.-9. september

  • 5.9.2016, 17:00 - 18:30, Krabbameinsfélagið Skógarhlíð 8

Mánudagur 5. september

13:00-15:00 Viðtalstími hjúkrunarfræðings. Sími 800 4040.

Þriðjudagur 6. september

11:30-12:00 Hópslökun fyrir krabbameinsgreinda og aðstandendur þeirra. Allir velkomnir!

13:30-15:30 Hugræn atferlismeðferð (HAM). Námskeið. Leiðbeinandi: Gunnjóna Una Guðmundsdóttir 4/4.

Miðvikudagur 7. september

13:00-13:30 Samtal um réttindi fólks með krabbamein. Allir velkomnir.

13:00-15:00 Handavinnu-og bókakaffið. Láttu sjá þig!

17:00-18:00 Góðir hálsar. Rabbfundur.

Fimmtudagur 8. september

13:00-15:00 Styrkur. Viðtalstími. Sími 540 1911.

17:00-18:00 Ráðstefna. Globeathon alþjóðlegt átak til að vekja athygli á krabbameini í kvenlíffærum.

Föstudagur 9. september

13:00-15:00 Viðtalstími félagsráðgjafa. Sími 800 4040 og 540 1912.

Námskeið í núvitund

Mánudaginn 19. september kl. 13:30-15:30 hefst námskeið í núvitund (mindfullness) sem ætlað er fyrir krabbameinsgreinda og aðstandendur. Námskeiðið er vikulega í átta skipti. Þátttökugjald er 8.000 kr.

Leiðbeinandi er Margrét Bárðardóttir sálfræðingur.

Skráning á radgjof@krabb.is eða í síma 800 4040.

Hvíldarhelgi á Eiðum

Krabbameinsfélag Austfjarða og Krabbameinsfélag Austurlands bjóða krabbameinsgreindum og aðstandendum þeirra að Eiðum helgina 23.-25. september. Boðið verður meðal annars upp á kyrrðarstund, nudd og hreyfingu í fögru umhverfi. Dvölin er þátttakendum að kostnaðarlausu.

Nánari upplýsingar hjá kraus@simnet.is og hjá Jórunni í síma 863 0475.


Var efnið hjálplegt?