Breyting á opnunartíma frá 4. maí

Ráðgjafarþjónusta Krabbameinsfélagsins

  • 4.5.2020 - 5.5.2020

Frá og með 4. maí er Ráðgjafarþjónustan opin alla virka daga kl.9-16, hægt er panta viðtal í síma 800 4040 eða á radgjof@krabb.is. Einnig er hægt að koma við án þess að gera boð á undan sér líkt og áður.

Viðburði, námskeið og fræðslufundi munum við ekki bjóða upp á að svo stöddu í Skógarhlíðinni en munum halda áfram að bjóða upp á ýmislegt spennandi í gegnum vefinn. Við metum stöðuna daglega til að tryggja öryggi þeirra sem til okkar leita.

Vinsamlegast hafið í huga að ef þið finnið fyrir flensueinkennum er mikilvægt fresta heimsókn til okkar og endurbóka tíma.

Við fylgjum leiðbeiningum frá Embætti landlæknis og almannvarna í hvívetna.

Sýnum saman ábyrgð í þessum aðstæðum.

Starfsfólk Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins


Var efnið hjálplegt?