Bleiki dagurinn
Föstudagurinn 14. október er Bleiki dagurinn. Hvernig væri nú að skipuleggja sérstakt mömmukaffi í vinnunni eða heima fyrir og bjóða mæðrum okkar upp á ilmandi kaffi og eitthvað með því? Einnig er tilvalið að klæðast bleikum fötum í tilefni dagsins. Gerum það #fyrirmömmu
Við hvetjum alla til að senda okkur skemmtilegar, bleikar myndir af sér og mömmu, vinahópum og vinnufélögum á netfangið bleikaslaufan@krabb.is og munum við birta þær hjá okkur á facebooksíðu Bleiku slaufunnar. Merkið myndirnar #bleikaslaufan #fyrirmömmu
Ef að fyrirtæki vilja styrkja Bleiku slaufuna þennan dag þá lumum við á ýmsum skemmtilegum hugmyndum hér .
Bleikar kveðjur!
Krabbameinsfélagið