Aðalfundur Krabbameinsfélags Reykjavíkur

  • 14.3.2016, 20:00, Krabbameinsfélagið Skógarhlíð 8

Aðalfundur Krabbameinsfélags Reykjavíkur verður haldinn mánudaginn 14. mars 2016. Fundurinn verður í húsakynnum félagsins að Skógarhlíð 8 og hefst kl. 20:00.

Að loknum aðalfundarstörfum flytur Valgerður Sigurðardóttir yfirlæknir á Líknardeild Landspítalans erindi sem hún nefnir „Hugleiðingar um líknarmeðferð og umræðuna um líknardráp“.

Að venju verður boðið upp á kaffiveitingar. 

Nýir félagsmenn velkomnir.


Var efnið hjálplegt?