70 ára afmæli Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis
Í tilefni af 70 ára afmæli Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis býður félagið upp á dagskrá í Hofi, mánudaginn 21. nóvember kl. 17:00 - 19:00. Dagskráin er öllum opin og við hvetjum sem flesta til að mæta og njóta dagsins með okkur.
Dagskrá:
- Kynning á starfsemi Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis: Selma Sigurjónsdóttir formaður félagsins
- Þögull morðingi - Nick Cariglia sérfræðingur í meltingarsjúkdómum
- Reynslusaga - Hildur Eir Bolladóttir
- Afhending á styrk frá Dekurdögum 2022 - Inga & Vilborg
- Skemmtiatriði - Jónína Björt & Ívar Helgason syngja fyrir gesti
- Veitingar - Pinnamatur frá Garún & afmæliskaka frá Bakarínu við Brúna
- Vefsíða Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis