„Við upplifðum þetta þannig að ráðgjafinn hefði gert hvað sem er".

Ráðgjöf og stuðningur án endurgjalds fyrir alla er einungis möguleg vegna stuðnings Velunnara. „Ég veit hreinlega ekki hvernig við hefðum komist í gegnum þetta án Ráðgjafarþjónustunnar. Bæði fyrir pabba okkar – og okkur.“

Þetta segir Berglind Amy Guðnadóttir en hún og systir hennar, Sara Dögg, kynntust Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins þegar faðir þeirra greindist með krabbamein. Hann var þá búsettur á Suðurlandi og nýtti sér þjónustuna þegar ráðgjafi frá félaginu tók á móti skjólstæðingum á Selfossi.

„Við gátum alltaf leitað til hennar, það skipti í raun engu máli hvar eða hvenær það var. Hvort sem það var í gegnum tölvupóst, síma eða kíkja í heimsókn,“ segir Sara Dögg.

Faðir systranna lést síðastliðið haust vegna krabbameins en að þeirra sögn reyndist ráðgjafi Krabbameinsfélagsins honum einstaklega vel, allt þar til yfir lauk. Þær hvetja alla til að nýta sér þjónustuna ef krabbamein skyldi knýja dyra, jafnt krabbameinsgreinda og aðstandendur.

Þetta skipti hann gríðarlega miklu máli og það sem meira er, þá skipti þetta okkur miklu máli og gerir það enn. Við upplifðum þetta þannig að ráðgjafinn hefði gert hvað sem er, sama hver spurningin væri að þá hefði hún einfaldlega grafið upp svarið þótt hún hafi þurft að gera það með skóflu. Það virtist ekkert vera til staðar sem hún lagði ekki á sig, fyrir okkur og fyrir pabba.

Sara Dögg bætir því við að samtölin sem faðir þeirra átti við ráðgjafann hafi verið honum afar dýrmæt. „Þau ræddust við bæði í síma þar sem hann bjó á landsbyggðinni og hún hitti hann einnig á Selfossi og reyndi alltaf að koma til móts við hans þarfir.“

Ráðgjöf er líka fyrir karla
Krabbameinsfélagið hefur að undanförnu reynt að ná meira til krabbameinsgreindra karla, sem virðast síður sækja í ráðgjöf heldur en konur. Ástæðurnar eru ekki alveg ljósar en systurnar leggja sérstaka áherslu á að það sé ekkert sem eigi að koma í veg fyrir að karlar leiti sér aðstoðar, það hafi svo sannarlega skipt föður þeirra máli. „Ráðgjafarþjónustan reyndist okkur öllum vel, karlar eins og allir aðrir ættu endilega að nýta sér þessa þjónustu. Það myndi enginn sjá eftir því.“

Ráðgjöf og stuðningur án endurgjalds fyrir alla er einungis möguleg vegna stuðnings Velunnara, mánaðarlegra styrktaraðila Krabbameinsfélagsins.

Tekist á við sorgina

Systurnar eru enn að syrgja föður sinn. Veturinn reyndist langur og einkennilegur og ytri aðstæður óheppilegar. Berglind brá á það ráð að takast á við sorgina með því að semja einlægt og fallegt ljóð. Hún gaf okkur góðfúslegt leyfi til að birta það hér.

Meinið

Þú tókst fleiri tár en allt annað

Þar með hefur þú sannað

Hversu illgjarn þú ert

Þetta gastu gert

 

Þú tókst

Tárin hans

Tárin hennar

Tárin mín

 

Myrkur, mein og vanmáttur

Verulega ósáttur

Von og ótti

Hálfgerður flótti

 

Þú tókst

Vonina hans

Vonina hennar

Vonina mína

 

Þú lést ljós þitt skína

Kvöl og pína

Öll þessi sár

Blóð, sviti og tár

 

Smátt og smátt

Þú tókst

Þú tókst

Hann

Berglind Amy Guðnadóttir 2020

Hefur þú greinst með krabbamein eða ert aðstandandi? Ráðgjafar okkar eru til staðar fyrir þig í síma 800 4040 alla virka daga. Þú getur líka sent okkur tölvupóst á radgjof@krabb.