Brjóstaþreifing - Þreifaðu brjóstin reglulega

Mælt er með að konur á öllum aldri skoði brjóstin reglulega. Þá átta þær sig á því hvað er eðlilegt og ef eitthvað breytist frá því síðast.

Þegar boðsbréf um skimun fyrir brjóstakrabbameini fara að berast er svo mælt með að konur mæti reglulega í skimun en haldi um leið áfram að fylgast sjálfar með brjóstum.

Þetta eykur líkur á að á að mein finnist áður en þau eru langt á veg komin.

Best er að skoða brjóstin einu sinni í mánuði, viku til tíu dögum eftir að blæðingar hefjast. Þá eru brjóstin mýkst. Eftir tíðahvörf er best að þreifa brjóstin á svipuðum tíma í hverjum mánuði, til dæmis fyrsta sunnudag í hverjum mánuði. Mikilvægt er að leita læknis ef einhver breyting finnst. Rétt er að hafa í huga að flestir hnútar í brjóstum eru góðkynja.

Kennslumyndband og leiðbeiningar um brjóstaþreifingu:brjóstaþreifingu

Þulur: Katla Margrét Þorgeirsdóttir

«Copyright Norwegian Cancer Society»


Var efnið hjálplegt?
Var efnið hjálplegt?
Var efnið hjálplegt?