Jóladagatal: Svefn og krabbamein
Gera má ráð fyrir að lítill svefnfriður hafi verið á heimilum landsmanna í nótt í óveðrinu, kannski hafa einhverjir haldið að Hurðaskellir hafi komið snemma til byggða. Um fjórðungur fullorðinna Íslendinga og 75% ungmenna sofa almennt of lítið. En eru einhver tengsl milli svefnleysis og krabbameins?
Niðurstöður nýlegrar samantektargreinar, þar sem teknar voru saman niðurstöður 65 rannsókna, benda ekki til þess að bein tengsl séu milli svefntíma og krabbameins [1]. Stuttur svefn hefur hins vegar verið tengdur óhollum fæðuvenjum og aukinni orkuinntöku meðal barna og fullorðinna [2-4] sem og þyngdaraukningu og offitu [5-7]. Offita er áhættuþáttur fyrir ýmsum tegundum krabbameina, þar á meðal í ristli og endaþarmi [8, 9] og brjóstum sem greinist eftir tíðahvörf [10]. Þannig getur ónógur svefn verið óbeinn áhættuþáttur fyrir krabbameini.
Um fjórðungur fullorðinna Íslendinga sefur innan við sjö klukkustundir á nóttu [11], sem er talinn stysti æskilegi svefntími samkvæmt rannsóknum [12]. Þrír af hverjum fjórum ungmennum í 10. bekk sofa innan við 8 klukkustundir á nóttu [13], sem er skilgreindur sem lágmarks svefn [12].
Þó að fólk hrökkvi upp við óveður eða hurðaskell frá stríðnum jólasveini einu sinni á ári ættu allir að kappkosta að sofa nóg aðrar nætur enda stuðlar nægur svefn og góðar svefnvenjur að betra andlegu og líkamlegu heilsufari fólks. Í jólatíðinni mætti fólk gera vel við sig með góðum nætursvefni. Eins gæti gjafabréf í pössun á sunnudagsmorgni verið ágætis gjöf fyrir þreytta smábarnaforeldra.
Eigið letileg jól.
Tengdar greinar:
Jóladagatal - mjólk og krabbamein
Jóladagatal - uppáhaldið hans Pottaskefils
Jóladagatal - kjöt og krabbamein
Jóladagatal - hreyfum okkur um jólin
Heimildir:
1. Chen Y, Tan F, Wei L, Li X, Lyu Z, Feng X, et al. Sleep duration and the risk of cancer: a systematic review and meta-analysis including dose-response relationship. BMC Cancer. 2018;18(1):1149.
2. Cordova FV, Barja S, Brockmann PE. Consequences of short sleep duration on the dietary intake in children: A systematic review and metanalysis. Sleep Med Rev. 2018;42:68-84.
3. Chapman CD, Benedict C, Brooks SJ, Schioth HB. Lifestyle determinants of the drive to eat: a meta-analysis. Am J Clin Nutr. 2012;96(3):492-7.
4. Al Khatib HK, Harding SV, Darzi J, Pot GK. The effects of partial sleep deprivation on energy balance: a systematic review and meta-analysis. Eur J Clin Nutr. 2017;71(5):614-24.
5. Cappuccio FP, Taggart FM, Kandala NB, Currie A, Peile E, Stranges S, et al. Meta-analysis of short sleep duration and obesity in children and adults. Sleep. 2008;31(5):619-26.
6. Miller MA, Kruisbrink M, Wallace J, Ji C, Cappuccio FP. Sleep duration and incidence of obesity in infants, children, and adolescents: a systematic review and meta-analysis of prospective studies. Sleep. 2018;41(4).
7. Wu Y, Zhai L, Zhang D. Sleep duration and obesity among adults: a meta-analysis of prospective studies. Sleep Med. 2014;15(12):1456-62.
8. Abar L, Vieira AR, Aune D, Sobiecki JG, Vingeliene S, Polemiti E, et al. Height and body fatness and colorectal cancer risk: an update of the WCRF-AICR systematic review of published prospective studies. Eur J Nutr. 2018;57(5):1701-20.
9. Schlesinger S, Aleksandrova K, Abar L, Vieria AR, Vingeliene S, Polemiti E, et al. Adult weight gain and colorectal adenomas-a systematic review and meta-analysis. Ann Oncol. 2017;28(6):1217-29.
10. Namazi N, Irandoost P, Heshmati J, Larijani B, Azadbakht L. The association between fat mass and the risk of breast cancer: A systematic review and meta-analysis. Clin Nutr. 2018.
11. Embætti landlæknis. 2018. Valdar niðurstöður úr Heilsa og líðan Íslendinga. Svefn. https://www.landlaeknir.is/servlet/file/store93/item35882/71_svef1_Svefn_UTGEFID.pdf.
12. Hirshkowitz M, Whiton K, Albert SM, Alessi C, Bruni O, DonCarlos L, et al. National Sleep Foundation's updated sleep duration recommendations: final report. Sleep Health. 2015;1(4):233-43.
13. Rognvaldsdottir V, Valdimarsdottir BM, Brychta RJ, Hrafnkelsdottir SM, Arngrimsson SA, Johannsson E, et al. [Physical activity and sleep in Icelandic adolescents]. Laeknabladid. 2018;104(2):79-85.