Ása Sigríður Þórisdóttir 7. maí 2021

Viltu gera heilsunni greiða?

Ráð til að draga skipulega og meðvitað úr áfengisneyslu

Verum meðvituð um áhættuna

Áfengi er staðfestur krabbameinsvaldur samkvæmt flokkun Alþjóða­krabba­meins­rannsóknar­stofnun­ar­innar (IARC) og tengist áfengisneysla auknum líkum á krabbameinum í munnholi, koki, barkakýli, vélinda, lifur, brjóstum, ristli og endaþarmi. Auk þess hefur áfengisneysla ýmis önnur neikvæð áhrif, t.d. á starfsemi heila, lifrar, hjarta- og æðakerfis og á andlega heilsu ásamt því að auka líkur á slysum, ofbeldi og sjálsvígum. 

Magnið skiptir máli

Auknar líkur á krabbameinum tengjast magninu sem drukkið er. Það þýðir að þó best sé að sleppa áfengisdrykkju alfarið er líka hagur af því að draga úr magninu.

Ráð til að draga meðvitað og skipulega úr áfengisneyslu:

  • Pössum að eiga ekki áfengi á heimilinu dagsdaglega. Það að eiga áfengi eykur líkur á að það sé drukkið.
  • Gott er að koma sér upp reglum eða venjum varðandi áfengi á heimilinu og endurskoða þær reglulega. 
  • Notum minni vínglös og veljum veika drykki.
  • Drekkum vatn samhliða áfengi því þá er líklegra að minna verði drukkið af áfengi.
  • Gott er að frysta vín sem verður afgangs og nota seinna við eldamennsku frekar en að klára flöskuna.
  • Notum ekki áfengi til að slaka á eftir annasama daga. Aðrar leiðir til að slaka á eru að fara í rólegan göngutúr, sund eða heitt bað.
  • Útbúum sérstaklega fallega og góða óáfenga drykki í stað áfengra drykkja.
  • Ekki fá þér áfengi heima áður en þú ferð af stað á mannamót.
  • Gott er að ákveða fyrirfram við tækifæri þar sem áfengi verður í boði hvort þú ætlar að fá þér áfengi og hversu mikið að hámarki. Stattu við það.
  • Ekki láta undan þrýstingi annarra um að drekka og þrýstu heldur ekki á aðra.

Veistu hvað þú drekkur mikið áfengi?

Þrátt fyrir fjölmörg þekkt neikvæð áhrif áfengisneyslu, þar með talið aukna áhættu á krabbameinum, er hún samofin menningunni á ýmsan hátt og margir drekka við fjölmörg tækifæri án þess að velta því fyrir sér. Líklega drekka margir meira en þeir gera sér grein fyrir.

Það gæti verið áhugavert fyrir þig að halda ,,drykkjudagbók“ til að fá yfirsýn. Þá skráir þú niður á hverjum degi í að minnsta kosti viku og jafnvel upp í heilan mánuð hvenær, hvar og hve mikið þú drekkur. Með því að fá slíka yfirsýn getur þú unnið skipulegar að því að draga úr áfengisneyslu.


Fleiri nýir pistlar

15. des. 2023 : Jólamolar Krabba­meins­félagsins 2023

Njótum hátíðanna, hlúum að okkur og höfum það notalegt. Hér finnur þú slökun og hugleiðslu, gagnleg og góð ráð um hvernig hægt er að njóta jólakræsinganna á skynsaman máta og hvatningu til að búa til jólahreyfihefðir með fjölskyldu og vinum.

Lesa meira

14. des. 2023 : Bleikasta slaufan sló í gegn

Lovísa Halldórsdóttir Olesen og Unnur Eir Björnsdóttir, hönnuðir Bleiku slaufunni 2023, afhentu Krabbameinsfélaginu 13.475.000 krónur sem söfnuðust með sölu á Sparislaufunni.

Lesa meira

5. júl. 2023 : Fylgstu með brjóstunum og þekktu einkennin

Því fyrr sem brjóstakrabbamein finnst, því líkegri er góður árangur af meðferð. Fylgstu vel með brjóstum og handarkrikum. Skoðaðu og þreifaðu reglulega.

Lesa meira

5. júl. 2023 : Ekki láta blekkjast á ,,sólarlausum” og köldum sumardögum

Ímyndaðu þér sumardag á Íslandi. Veðrið getur verið ýmiskonar ekki satt? Ef úti er bongóblíða, heiðskír himinn og glampandi sól leiðirðu hugann kannski nokkuð sjálfkrafa að sólarvörnum; berð á þig sólkrem og notar flíkur og höfuðfat til að verja þig. (Ef þetta er ekki lýsandi fyrir þig á sólardögum hvetjum við þig til að kynna þér mikilvægi sólarvarna!).

Lesa meira

3. júl. 2023 : Góð ráð við grillið

Fátt er skemmtilegra en að grilla með fjölskyldu eða góðum vinum í góðu veðri. Ef rétt er að málum staðið getur grillmatur verið mjög hollur en til að tryggja að svo sé þarf að vanda til undirbúnings, meðhöndlunar hráefnis og framreiðslu.

Lesa meira