Ráðgjöf og þjónusta

Krabbameinsfélagið býður upp á fræðslu, upplýsingar, ráðgjöf og stuðning við fólk sem hefur greinst með krabbamein og aðstandendur.

Starfsfólk okkar er til staðar þegar á þarf að halda. Markmiðið er að aðstoða fólk við að ná jafnvægi við breyttar aðstæður í lífinu, veita stuðning og nauðsynlegar upplýsingar. Hjá okkur fá þeir sem greinst hafa með krabbamein og aðstandendur ráðgjöf og fræðslu um einkenni, félagsleg réttindi og þá þjónustu sem í boði er.

MYNDBAND UM RÁÐGJÖF OG ÞJÓNUSTU:

https://youtu.be/COMtMtBMjL0

Í boði eru meðal annars:

  • Fjölbreytt námskeið
  • Símaráðgjöf
  • Viðtöl
  • Sálfræðiþjónusta
  • Fræðslufundir
  • Djúpslökun
  • Hugleiðsla og jóga
  • Fjarviðtöl
  • Réttindaráðgjöf

Hjá Krabbameinsfélaginu starfa hjúkrunarfræðingar, sálfræðingar og félagsráðgjafar. Félagsráðgjafarnir veita ráðgjöf á íslensku og pólsku. Auk þess eru starfandi ellefu stuðningshópar fyrir fólk sem hefur greinst með krabbamein og aðstandendur. Þjónustan er öllum að kostnaðarlausu.

Markmið Krabbameinsfélagsins er að aðstoða fólk við að ná jafnvægi í lífinu eftir þær breyttu aðstæður sem greining krabbameins veldur. Hjá félaginu er boðið upp á fræðslu, viðtöl, faglega ráðgjöf, djúpslökun, ýmis námskeið og hagnýtar upplýsingar um réttindi fólks með krabbamein.

Krabbameinsfélagið er að Skógarhlíð 8 í Reykjavík og er opið mánudaga til fimmtudaga frá kl. 9-16 og frá kl. 9-14 á föstudögum. Þjónustan er öllum opin og hægt er að koma án þess að gera boð á undan sér eða hafa samband við starfsmenn Krabbameinsfélagsins í síma 800 4040 alla virka daga frá kl. 9-16 eða senda fyrirspurn í tölvupósti á netfangið radgjof@krabb.is og er þeim svarað eins fljótt og hægt er.

 

 


Var efnið hjálplegt?