Atburðir

mið 1.feb. 2012 - mið 29.feb. 2012

Dagskrá febrúarmánaðar

Dagskrá Ráðgjafarþjónustunnar

Opið að Skógarhlíð 8 í Reykjavík, 1. hæð, alla virka daga kl. 9-16. Sími 800 4040. Netföng  una@krabb.is og asdisk@krabb.is.  Hægt er að hafa samband við félagsráðgjafa í síma 540 1912 og hjúkrunarfræðing í síma 540 1916. Eða koma á staðinn. Öll þjónustan er að mestu án endurgjalds. Sjá nánar á www.krabb.is. Góð aðstaða fyrir fundi og námskeið og til að hittast yfir kaffibolla. Stuðningshóparnir halda flesta sína fundi í húsnæðinu og eru með viðveru og viðtalstíma þar.

 

Febrúar   2012

Mánudagar

kl.11:30-12:00 Qi gong. Leiðbeinandi Gunnar Eyjólfsson, ástundun tvisvar í viku.

kl. 14:45-15:15 Hópþjálfun í vatni fyrir einstaklinga sem hafa greinst með krabbamein í sundlaug endurhæfingardeildar Landspítala Grensási.
kl. 20:00-21:00 Göngum saman. Gengið frá Fríkirkjunni við tjörnina í Reykjavík.

Þriðjudagar

kl. 15:00-16:30 Samhjálp kvenna. Viðtalstími, sími 540-1911 kl. 10:00-11:30
kl 14:00-16.00.
Hugarheimurinn - hugsanir – innri raddir Örnámskeið 3.skipti hefst 7. feb HAM-ÖRNÁMSKEIÐ í hugrænni atferlismeðferð – sjá nánar á www.krabb.is.
kl. 18:00-19:00 Athugið samvera fyrir ekkjur og ekkla annan þriðjudag í mánuði.

Miðvikudagar

kl. 11:30-12:00 Qi gong iðkun. Leiðbeinandi Gunnar Eyjólfsson. Boðið upp á hressingu á eftir.
kl. 14:45-15:15 Hópþjálfun í vatni fyrir einstaklinga sem hafa greinst með krabbamein í sundlaug endurhæfingardeildar Landspítala Grensási.
Athugið hádegisfyrirlestra annan hvern miðvikudag í hádeginu, sjá að neðan.

Fimmtudagar

kl. 13:00-16:00  Bridge námskeið. Framhaldsnámskeið.
kl. 13:00-15:00 Styrkur. Viðtalstími, sími 896-5808.

Föstudagar

kl. 13:00-14:00 Fræðsla fyrir krabbameinsgreinda og  aðstandendur þeirra 7 fyrirlestrar í samstarfi við Landspítala Háskólasjúkrahús, vikulega.3. FEBRÚAR – 16. MARS -sjá að neðan.

Athugið alla virka daga er viðvera í Skógarhlíð. Hér að ofan eru fastir viðburðir. Annað er auglýst sérstaklega.
Viðtöl  og djúpslökun eru bókuð fyrirfram, sjá síma og netföng hér að ofan. Við hvetjum fólk að koma við og fá upplýsingar um það sem í boði er og skrá sig á póstlista www.krabb.is    

     

Stuðnings- og fræðslufundir í febrúar

Miðvikudagur 1. feb. kl. 17:00-18:00 Góðir hálsar: stuðningshópur um blöðruhálskirtilskrabbamein - Rabb.

Fimmtudagur  2. feb. 20:00-22:00 Stómasamtökin opið hús.

Föstudagur  3.feb. 13:00-14:00 Agnes Smáradóttir Sérfræðilæknir, LSH Að greinast með krabbamein.

Þriðjudagur 7.feb.  10:00-11:30 Örnámskeið Hugarheimurinn - hugsanir – innri raddir 3 skipti, hefst 7. feb.

Miðvikudagur 8. feb.  kl. 12:10-13:00   Tómstundir og gildi þeirra í daglegu lífi, Vanda Sigurgeirsdóttir kl. 17:00-18:00 Stuðningshópur um lungnakrabbamein opið hús.

Þriðjudagur 14.feb.   kl. 18.00-19.00 Samvera fyrir Ekkjur og Ekkla. Húsið opnar kl. 17:30. Kvíði, einmanaleiki, þunglyndi, Sr. Bragi Skúlason og Ásdís Karadóttir.
kl. 20:0-22:00 Styrkur: Guðrún Bergmann, hvernig má viðhalda góðri heilsu.

Mánudagur 20. feb. 14:30-16:00 Námskeið í árvekni/gjörhygli Margrét Bárðardóttir sálfræðingur á LSH. Námskeiðið er í 6 vikur. Kostnaður 6.600kr.

Miðvikudagur 22.feb.  12:10-13.00 Nýttu kraftinn

Fimmtudagur 23. feb. Kl. 16:30-18:00  Örráðstefna. Eru lögbundin réttindi krabbameinssjúklinga virt?
Frummælandi Guðríður Þorsteinsdóttir lögfræðingur og skrifstofustjóri hjá Velferðarráðuneytinu

Miðvikudagur 29. feb.  Kl. 17.00-18.00 Stuðningshópur kvenna með eggjastokkakrabbamein Rabbfundur

Föstudagar  3.,10.,17. og 24. Kl.13.00-14.00 Fræðsla fyrir krabbameinsgreinda og  aðstandendur þeirra .

Föstudagar - Alla föstudaga Kl 13:00-14:00 10. feb. Alís Inga Freygarðsdóttir  streita og slökun, 17 .feb. Margrét Bárðardóttir Veikindi og vellíðan, Frá streitu til sáttar, 24.feb   Helga Sigurðardóttir næring og krabbamein.

fös 3.feb. 2012 13:00 - fös 16.mar. 2012 14:00

FRÆÐSLA FYRIR KRABBAMEINSGREINDA OG AÐSTANDENDUR Í RÁÐGJAFARÞJÓNUSTUNNI KL. 13:00

FRÆÐSLA FYRIR KRABBAMEINSGREINDA
OG AÐSTANDENDUR ÞEIRRA
FEBRÚAR 2012

STAÐUR OG STUND:
Ráðgjafarþjónusta krabbameinsfélagsins
Skógarhlíð 8, 105 Reykjavík
Föstudaga kl. 13:00

3. febrúar 

Agnes Smáradóttir 
Sérfræðilæknir, LSH
Að greinast með krabbamein 
 
10. febrúar 

Alís Inga Freygarðsdóttir 
Iðjuþjálfi, LSH
Streita og slökun
     

17 .febrúar 

Margrét Bárðardóttir
Sálfræðingur, LSH
Veikindi og vellíðan,
Frá streitu til sáttar
  
24. Febrúar 

Helga Sigurðardóttir
Næringarráðgjafi, LSH
Næring og krabbamein

STAÐUR OG STUND:
Ráðgjafarþjónusta krabbameinsfélagsins
Skógarhlíð 8, 105 Reykjavík
Föstudaga kl. 13:00

2. mars

Guðný Steingrímsdóttir
Félagsráðgjafi, LSH
Í kjölfar greiningar; 
Réttindi, þjónusta og áhrif
 
9. mars   

Hannes Bjarni Hannesson
Sjúkraþjálfari, LSH
Þjálfun og hreyfing  
 

16. mars 

Þórunn K.Guðmundsdóttir
Klínískur lyfjafræðingur, LSH
Lyfin mín; almennar upplýsingar um lyf og lyfjanotkun

STAÐUR OG STUND:
Ráðgjafarþjónusta krabbameinsfélagsins
Skógarhlíð 8, 105 Reykjavík
Föstudaga kl. 13:00

mán 20.feb. 2012 14:30 - mán 26.mar. 2012 16:00

Námskeið í árvekni/gjörhygli

  

 

Námskeið í
árvekni/gjörhygli

 

 Á undanförnum áratugum hefur svokölluð  árvekniþjálfun, stundum kallað „gjörhygli“ (mindfulness)  verið innleidd sem viðbót við hefðbundna læknisfræðilega og sálfræðilega meðferð. Þar er tvinnað saman aðferðum hugrænnar atferlismeðferðar og sálfræði austrænnar visku.  Margar rannsóknir hafa sýnt fram á að árvekniþjálfun hefur jákvæð áhrif á almenna vellíðan og bætir heilsufar og dregur úr streitu, kvíða og depurð. Þjálfunin felst m.a. í því að læra að þekkja  hugsanir sínar, tilfinningar og það sem við finnum fyrir í líkamanum. Áherslan er  á að læra að nema staðar „hér og nú“  með stuttum hugleiðsluæfingum og annarri hugarþjálfun . Þannig má öðlast meiri hugarró  og njóta betur líðandi stundar.
 Námskeiðið er á vegum Sálfræðiþjónustu geðsviðs  LSH í samvinnu við Krabbameinsfélagið og er fyrir sjúklinga og/eða aðstandendur.
Leiðbeinandi: Margrét Bárðardóttir sálfræðingur
Skráning á netfang: margreba@landspitali.is s. 824 58 05
Staður: Ráðgjafarþjónusta Krabbameinsfélagsins,  Skógarhlíð 8, 1. hæð. Námskeiðið hefst mánudaginn 20.feb. kl. 14.30-16.00 
Alls 6 skipti og lýkur 26.mars. Kostnaður: Kr.6.600


 

fim 23.feb. 2012 16:30 - 18:00

Örráðstefna ERU LÖGBUNDIN RÉTTINDI KRABBAMEINSSJÚKLINGA VIRT?

ERU LÖGBUNDIN RÉTTINDI KRABBAMEINSSJÚKLINGA VIRT?

Frummælendur eru:

·        Guðríður Þorsteinsdóttir skrifstofustjóri, Velferðarráðuneytis

·        Einstaklingar segja frá reynslu sinni 

- Vilhelmína Haraldsdóttir, framkvæmdastjóri lyflækningasviðs Landspítalans       

lau 25.feb. 2012

Vísindi á laugardegi - næsti fræðslufundur á laugardaginn

Nú er komið að öðrum fræðslufundinum í fræðslufundaröð Göngum saman um gildi grunnrannsókna á brjóstakrabbameini, „Vísindi á laugardegi - Göngum saman í leit að lækningu á brjóstakrabbameini“.

Laugardaginn 25. febrúar kl. 13 mun rannsóknahópur Þórarins Guðjónssonar dósents og Magnúsar Karls Magnússonar prófessors taka á móti félögum Göngum saman og öðrum áhugasömum í Læknagarði og segja frá rannsóknum á stofnfrumum og hvernig þær hjálpa til við að skilja betur eðli og uppruna brjóstakrabbameins.

Þórarinn mun byrja fræðslufundinn með erindi í fyrirlestrarsalnum á 3. hæð í Læknagarði, byggingu Læknadeildar Háskóla Íslands, Vatnsmýrarvegi 16 og síðan verður fólki boðið að skoða rannsóknastofu hópsins á hæðinni fyrir ofan. Boðið verður upp á kaffi.

Sjá upplýsingar um einstaka fundi í fræðslufundaröðinni „Vísindi á laugardegi“ á viðburðardagatalinu á heimasíðunni.

mið 29.feb. 2012

Rabbfundur Stuðningshóps um eggjastokkakrabbamein

Stuðningshópur kvenna sem fengið hafa krabbamein í eggjastokka heldur rabbfund í húsi Krabbameinsfélagsins að Skógarhlíð 8 í Reykjavík, miðvikudaginn 29. febrúar. Fundurinn hefst kl. 17. Kaffiveitingar.

Konur sem fengið hafa krabbamein í eggjastokka eru hvattar til að mæta.

mið 29.feb. 2012

Bara gras? Fræðsla til foreldra um skaðsemi kannabis

Bara gras? Fræðsla til foreldra um skaðsemi kannabis.

Málþing í Hagaskóla í Reykjavík, miðvikudaginn 29. febrúar kl. 20:00 á vegum samstarfsverkefni um 20 hreyfinga og samtaka á Íslandi 

mið 28.mar. 2012

Rabbfundur Stuðningshóps um eggjastokkakrabbamein

Stuðningshópur kvenna sem fengið hafa krabbamein í eggjastokka heldur rabbfund í húsi Krabbameinsfélagsins að Skógarhlíð 8 í Reykjavík, miðvikudaginn 28. mars. Fundurinn hefst kl. 17. Kaffiveitingar.

Konur sem fengið hafa krabbamein í eggjastokka eru hvattar til að mæta.

 










Skipta um leturstærð


Leit