Vestmannaeyjar

Krabbavörn Vestmannaeyjum   

Stofnað: 25. apríl 1949 (endurvakið 3. maí 1990).
Félagsmenn: 234.
Stuðningshópur: Eyjarós.

Stjórn 

Formaður:   Ester Ólafsdóttir, Áshamri 12, Vestmannaeyjum, farsími 867 2218   baddie@simnet.is
Varaformaður:   Guðný S. Hilmisdóttir, Vesturvegi 22, 900 Vestmannaeyjum, sími 481 3084
Ritari:   Dóra Björk Gústafsdóttir, farsími 663 1581
Meðstjórnandi:   Guðbjörg Erla Ragnarsdóttir, farsími 868 5887
Meðstjórnandi:   Karólína Jósefsdóttir, Foldahrauni 39e, 900 Vestmannaeyjum, farsími 661 2845 
Meðstjórnandi:  Margrét Grímlaug Kristjánsdóttir, farsími 846 2782

Starfsemin 2011-2012

Tilgangur félagsins er að styrkja og styðja þá sem glíma við þessi veikindi. Það eru alltaf einhverjir sem þurfa á aðstoð að halda. Stuðningsmannafélagið Eyjarós heldur fundi fyrsta fimmtudag í mánuði. Þá er spjallað um ýmislegt, ekki bara veikindi heldur landsins gagn og nauðsynjar. Við förum heim til fólks eða það kemur til okkar. Krabbavörn greiðir leigu fyrir íbúðirnar og svo er viss fjárstyrkur fyrir hverja ferð suður en það hefur breyst mikið eftir að lyfjagjöf hófst hér. Einnig er greiddur jarðarfararstyrkur. 

Það er orðið fastur liður að fara í áramótagöngu á gamlársdagsmorgun og áheit eru greidd til Krabbavarnar. Mottumars kom vel út. Salan í haust gekk vel, við seldum engla og álfabörn sem búið var að pakka inn í sellófan og setja bleika slaufu á. Þessi sala og minningarkort eru aðaltekjulind félagsins ásamt félagsgjöldum og áheitum. Íbúðirnar í Reykjavík eru mikið notaðar af okkar fólki.

Í október voru Landakirkja, Ráðhúsið og Heimaklettur lýst bleik, í tilefni af árveknisátaki um konur og krabbamein. Til stóð, annað árið í röð, að hafa formannafundinn í Eyjum en samgöngur leyfðu það ekki. Vonandi gengur það næst. Á síðasta aðalfundi hættu Herdís Tegeder og Petra Ólafsóttir í stjórn en þær höfðu starfað með félaginu í 20 ár. 

Jón Björn Marteinsson, sem hafði verið með okkur í stjórn, lést úr krabbameini 14. mars, aðeins 28 ára. Þar er stórt skarð en eiginkona hans kemur í stjórnina hans stað. Hans er sárt saknað.

Ester Ólafsdóttir.

15.03 2013 - Föstudagur

Þú getur borið mottu

Armbönd til styrktar Mottumars fást nú um land allt. Armböndin eru hönnuð af Einari Thor hjá Thorshammer og eru úr trékúlum með litlu álmerki með ágrafinni mottu. 
01.11 2011 - Þriðjudagur

Varð 100 ára og bað afmælisgesti að styrkja Krabbavörn

Ingunn S. Júlíusdóttir frá Vestmannaeyjum náði þeim merka áfanga að fagna 100 ára afmæli sínu hinn 24. október síðastliðinn.


Krabbavörn Vestmannaeyjum

Formaður:   

Ester Ólafsdóttir
Sími:  867 2218   
baddie@simnet.is







Skipta um leturstærð


Leit