Austurland

Krabbameinsfélag Austurlands


Stofnað: 20. apríl 1970.
Félagsmenn: 150.
Stuðningshópur: Styrkur á Austurlandi. Brekkugötu 9 Reyðarfirði sími 849 3446. Upplýsingar gefur Anna Ragnheiður Gunnarsdóttir, sími 869 0810.        

Stjórn kosin á aðalfundi félagsins 29. apríl 2011.

Formaður:   Alfreð Steinar Rafnsson, Dalseli 8, 700 Egilsstöðum   847 2524   alfred.steinar@gmail.com
Gjaldkeri:   Kristjana Björnsd., Bakkavegi 1, 720 Borgarfirði eystra   893 5211   kristbj.skima@simnet.is
Ritari:   Jóna Björg Sveinsdóttir, Geitlandi, 720 Borgarfirði eystra   862 7865   jonasb@ismennt.is
Meðstjórnandi:   Ásdís Sigurjónsdóttir, Stekkjartröð 10, 700 Egilsstöðum   824 3920   asdiss@simnet.is
Meðstjórnandi:   Karólína S. Ingvarsdóttir, Dalseli 8, 700 Egilsstöðum   824 3920   kain@mi.is

Starfsemi 2010

Starfsárið 2010 byrjaði á heimsókn á Borgarfjörð. Karólína, Guðrún María, Anna Heiða og Margrét Perla, músíkþerapist, fórum þangað 14. mars. Var haldinn fundur í Fjarðarborg. Á hann komu allmargar konur. Karlmenn létu ekki sjá sig. Var þetta hinn besti fundur og veitingar ekki af verri endanum. Perla kynnti sína starfsemi og tók strax konur í meðferð. Við hinar skoðuðum barnaskólann undir leiðsögn Jónu Bjargar. Hann minnti okkur Nunnu svolítið á gamla vinalega skólann okkar. Einnig skoðuðum við Ævintýraland barnanna og líka fullorðinna.

Í mars seldum við mottunælur í tilefni af átakinu karlmenn og krabbamein. Salan gekk vel.

Tveir stjórnarfundir voru haldnir á árinu og aðalfundurinn 30. apríl.

Alfreð Steinar fór á aðalfund Krabbameinsfélags Íslands í maí. Alfreð og Anna Heiða keyrðu svo strax austur í ösku og reyk þar sem ekki var flogið vegna gossins í Eyjafjallajökli. Völdu auðvitað suðurleiðina.

Hvíldarhelgin var í Kirkjumiðstöðinni á Eiðum eins og verið hefur. Frá okkar félagi var Kristjana Björnsdóttir aðalkokkur í eldhúsinu. Auk hennar hjálpuðu til Guðrún María Þórðardóttir, Jóna Björg Sveinsdóttir, Alfreð Steinar Rafnsson, Gunnhildur Ingvarsdóttir og Karólína. Þetta var yndisleg helgi. Margt á dagskrá og frábært fólk sem kom til að njóta dvalarinnar.

Þá voru seldar rúðusköfur og saumabuddur í september til fjáröflunar. Gekk salan vel. Allt seldist sem pantað var. Selt var á Borgarfirði og á Egilsstöðum. Fellaskóli vildi ekki vera með að selja. Núna þarf leyfi foreldra til að börnin megi ganga í hús og selja.

Október er bleiki mánuðurinn. Settar voru bleikar filmur í ljóskastara við Egilsstaðakirkju, Vallaneskirkju, Eiðakirkju, Bakkagerðiskirkju og Seyðisfjarðarkirkju.

Í október fór Karólína á formannafund í Hveragerði. Hann var haldinn í húsakynnum Náttúrulækningafélags Íslands. Mjög fróðlegur og góður fundur. Vorum þarna í heilsufæði bæði í mat og kaffi. Við fengum einnig leiðsögn um húsið og sýnt ýmislegt bæði inni og úti. Til dæmis eru þeir með gróðurhús og rækta allt sitt grænmeti og geta einnig selt. Sáum leirböðin frægu og sundlaugarnar. Þetta er frábært þarna. Skil núna hvers vegna allir sem fara í Hveragerði vilja fara aftur. Daginn áður fékk ég að sitja fund starfsmanna landsbyggðarfélaganna sem haldinn var í Skógarhlíðinni. Mér fannst hann líka mjög góður.

Á stjórnarfundi í haust var samþykkt að gefa 100.000 kr. til að stofna minningasjóð um Margréti Oddsdóttur, skurðlækni og sérfræðilækni á Landspítala. Hún var brautryðjandi í kviðsjáraðgerðum. Hún lést úr brjóstakrabbameini í janúar 2009.

Í nóvember fórum við Alfreð Steinar á fund á Reyðarfjörð með Álfheiði og Önnu Heiðu og skoðuðum nýju þjónustumiðstöðina.

Minningakortin hafa verið til sölu hjá HSA og Lyfju. Einnig hafa þær Guðrún María á Egilsstöðum og Bryndís á Borgarfirði tekið að sér að selja minningakortin.

Við höfum notið góðrar hjálpar starfsmanns þjónustumiðstöðvarinnar á Reyðarfirði á árinu og þökkum Önnu Heiðu kærlega fyrir. Hjá henni er hægt að fá upplýsingar um t.d. íbúðirnar í Reykjavík og margt fleira sem upp kemur.

Karólína S. Ingvarsdóttir.

06.10 2011 - Fimmtudagur

Alcoa starfsmenn hlaupa til góðs og lýsa upp hús

Alcoa Fjarðaál á Reyðarfirði tekur mikinn þátt í Bleika slaufu átaki Krabbameinsfélagsins. Þau hafa nú lýst upp Sómastaði, súrálsfæribandið og tvö mastur í rafveitu, austan við verksmiðjuna. Laugardaginn 8. október ætla starfsmenn Fjarðaáls að fara í bleikt boðhlaup. 
26.08 2011 - Föstudagur

Orlofshelgi á Eiðum

Orlofshelgi fyrir krabbameinsgreinda og maka eða vin í Kirkjumiðstöð Austurlands Eiðum 26. – 29. ágúst 2011.
Þema helgarinnar er endurhæfing.

Þátttökugjald er kr. 2.500.-

Upplýsingar gefa Álfheiður Hjaltadóttir í síma 898 1530 og Anna Heiða Gunnarsdóttir 869 0810.









Skipta um leturstærð


Leit