Vestur-Skaftafellssýsla
Krabbameinsfélag Vestur-Skaftafellssýslu
Stofnað: 6. maí 1971 (endurvakið 22. nóvember 2004 og aftur 5. maí 2009).
Stjórn kosin á aðalfundi 19. mars 2011:
Formaður: Sigurður Elías Guðmundsson, Sunnubraut 8, 870 Vík 896 0360
elias@vikurskali.isGjaldkeri: Sigríður Dórothea Árnadóttir, Sigtúni 4, 870 Vík
Ritari: Margrét Einarsdóttir, Mörk, 880 Kirkjubæjarklaustri 487 4676
sida@simnet.isMeðstjórnandi: Ingvar Jóhannesson, Höfðabrekku, 871 Vík 894 2191
ingvar-carina@simnet.isMeðstjórnandi: Rannveig Bjarnadóttir, Skaftárvöllum 8, 880 Kirkjub.kl. 865 7387
reb@simnet.is
Starfsemi 2010-2011
Krabbameinsfélag Vestur-Skaftafellssýslu var stofnað 6. maí 1971. Aðalhvatamaður að stofnunni var þáverandi héraðslæknir í Vík, Vigfús Magnússon. Í nóvember 2004 boðaði Lionsklúbburinn Suðri í Vík til fundar með fulltrúum frá krabbameinsfélögunum í Árnessýslu og Rangárvallasýslu. Á þeim fundi er ákveðið að endurvekja starfsemi félagsins, sem legið hafði niðri í mörg ár, og voru lögð fram ný lög, þar sem gögn frá félaginu voru glötuð. Á fundinum var kosin ný stjórn félagsins en ekki tókst að koma starfsemi í félagið fyrst um sinn. Það er ekki fyrr en í maí 2009 sem aðalfundur var haldinn í Vík. Þá hafði ekki verið fundað í nokkur ár og þar var skipuð ný stjórn og það er sú stjórn sem enn situr.
Félagasamtök svo og einstaklingar hafa verið einstaklega velviljaðir félaginu. Hafa því borist höfðinglegar peningaupphæðir og minningagjafir, sem við í stjórninni viljum færa gefendum bestu þakkir fyrir. Hver sá sem þarf á krabbameinsmeðferð að halda og sækir um til félagsins fær styrk til endurgreiðslu á húsnæði á meðan á dvöl sjúklings/aðstandenda stendur. Við höfum reynt að verið dugleg að styrkja og styðja fólk sem að greinst hefur með krabbamein og þarf að leita sér læknsiaðstoðar og jafnvel þurft að dvelja lengri tíma í Reykjavík eða jafnvel enn lengra í burtu.
Félagatalið hefur ekki lengst jafn mikið og ég hefði kosið, en góðir hlutir gerast hægt.
Ákveðið var á fundi stjórnar fyrir ári eða svo að fara í fyrirtæki og biðja um styrki og hefur það gefist þokkalega. Sum fyrirtæki sjá sér ekki fært að styrkja okkur sökum ástands í samfélaginu en aðrir styðja dugleg við bakið á okkur. Þessu munum við halda áfram og sjá hvort að þetta sé ekki ávinningur fyrir félagið.
Í fyrra fengum við Ragnheiði Alfreðsdóttur frá Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélags Íslands til að tala við okkur um karla og krabbamein. Fundirnir voru haldnir á Ströndinni í Vík og Systrakaffi á Klaustri. Það var þokkalega mæting, 10-15 manns á hvorum stað, en þetta höfum við ætlað okkur að gera oftar. Nú í mars kom til okkar Sigurður Árnason krabbameinslæknir sem hélt stutt erindi varðandi krabbamein, krabbameinsvalda og áhrif krabbameins.
Við sjáum ekki annað en það sé þörf fyrir slíkan félagsskap sem þennan og munum halda áfram á sömu braut og áður.
Sigurður Elías Guðmundsson.