Suðausturland

Krabbameinsfélag Suðausturlands   

Stofnað: 21. apríl 1970 (endurvakið 1. október 2002).
Félagsmenn: 150.   
Stuðningshópur:  Stuðningshópur fyrir sjúklinga og annar fyrir aðstandendur, Höfn í Hornafirði. Upplýsingar gefur Ester Þorvaldsdóttir s. 663 9861 og 478 1400.

Stjórn:

Formaður:   Ester Þorvaldsóttir, Hólabraut 2, 780 Höfn     478 2040   ester@hssa.is
Gjaldkeri:   Ólöf Ólafsdóttir   487 1613
Ritari:   Eyrún Axelsdóttir   487 1527
Meðstjórnandi:   Ólöf Gísladóttir   

Starfsemi 2010-2011

Veittir hafa verið styrkir í vetur til einstaklinga. Einnig greiðum við leigu fyrir krabbameinssjúklinga sem dvelja í íbúðum Krabbameinsfélagsins og gista á Sjúkrahótelinu meðferðardagana.

Við erum með okkar minningarkort og tökum þátt í almennri haustfjáröflun á vegum Krabbameinsfélags Íslands.

Í apríl hófst samstarf á milli knattspyrnudeildar ungmennafélagsins Sindra, Krabbameinsfélags Suðausturlands og forvarnarsjóðs Landsbanka Íslands á Hornafirði með áherslu á forvarnir og fræðslu. Áhersla er á að draga úr munntóbaksnotkun íþróttafólks.

Meistaraflokkur karla sá um sölu á skeggpinnunum í mars og gekk það vel. Meistaraflokkur kvenna kemur til með að sjá um sölu á bleiku slaufunni í haust.

Ester Þorvaldsdóttir.

 











Skipta um leturstærð


Leit