Snæfellsnes
Krabbameinsfélag Snæfellsness
Stofnað: 27. september 2005.
Félagsmenn: 93.
Stuðningshópur: Von, stuðningshópur Krabbameinsfélags Snæfellsness, Borgarbraut 2, Grundarfirði. Upplýsingar gefur Margrét Hjálmarsdóttir, sími 864 1767.
Stjórn kosin á aðalfundi 4. júní 2010:
Formaður: Sveinbjörg Eyvindsdóttir, Hellnum, 356 Snæfellsbæ 866-5237
bros88@simnet.is Gjaldkeri: Magnea Sigurbj. Kristjánsdóttir, Fornu-Fróðá, 356 Snæf. 864-1363
sibbakrist@simnet.isRitari: Guðmunda Þórðardóttir, Bárðarási 1, 360 Snæfellsbæ 897-4241
munda@gsnb.isMeðstjórnandi: Hjördís Vilhjálmsdóttir, Grundargötu 72, 350 Grundarf. 438-6667
hjordisvilhjalms@gmail.comMeðstjórnandi: Margrét Hjálmarsdóttir, Fagurhólstúni 14, 350 Grundarf. 864-1767
maggahj@simnet.is
Starfsemi 2010-2011
Aðalfundur Krabbameinsfélags Snæfellsness var haldinn 4. júní 2010. Þær breytingar urðu á stjórn félagsins að Helga Aðalsteinsdóttir, Stykkishólmi, gaf ekki kost á sér til stjórnarsetu lengur og er nýr meðstjórnandi Hjördís Vilhjálmsdóttir, Grundarfirði og bjóðum við hana velkomna til starfa. Jafnframt er miður að hafa ekki sömu dreifingu stjórnarmeðlima áfram um aðildarsvæðið. Starf síðasta árs hefur verið með sama sniði og áður, fyrst og fremst gegnum netið þar sem allar helstu ákvarðanir eru teknar. Venjulegir stjórnarfundir eru afar sjaldgæfir þar sem stjórnarmeðlimir búa dreift.
Hefðbundin fjáröflun aðildarfélaga, svokölluð pennasala, fór fram í september. Í október skein bleikur um allar sveitir meðan seldar voru bleikar slaufur fyrir Krabbameinsfélag Íslands til styrktar rannsóknum á brjóstakrabbameini. Mottumars til styrktar körlum og krabbameini fór af stað hjá Krabbameinsfélagi Íslands í annað skipti. Því miður sáum við okkur ekki fært að taka þátt í pinnasölu af því tilefni þetta árið en karlmenn á Snæfellsnesi létu sitt ekki eftir liggja.
Mikil aukning var á sölu minningarkorta í nafni félagsins sem má rekja til góðs aðgengis á netinu og hjá símaþjónustu Krabbameinsfélags Íslands. Að venju tók félagið þátt í dvalarkostnaði vegna lækninga fjarri heimabyggð og tveir stærri styrkir veittir.
Sveinbjörg Eyvindsdóttir.
rundarfjörður: Von, stuðningshópur Krabbameinsfélags Snæfellsness, Borgarbraut 2, Grundarfirði. Upplýsingar gefur Margrét Hjálmarsdóttir, sími 864 1767.