Breiðafjörður
Krabbameinsfélag Breiðfirðinga
Stjórn kosin 20. apríl 2010:
Formaður: Jóna Valgerður Kristjánsd., Mýrartungu 2, 380 Reykh. 893-6396
helgi33@simnet.is Ritari: Guðrún Björnsdóttir, 370 Búðardal
Gjaldkeri: Arnór Grímsson, Króksfjarðarnesi, 380 Reykhólahreppi 854-7706
Meðstjórnandi: Skjöldur Orri Skjaldarson, 370 Búðardal
Meðstjórnandi: Þrúður Kristjánsdóttir, 370 Búðardal
Starfsemi 2010
Krabbameinsfélag Breiðfirðinga var stofnað 19. október 2005 að Laugum í Sælingsdal og eru félagar nú um 40.
Aðalfundurinn var haldinn 20. apríl í Leifsbúð í Búðardal. Gestur fundarins var Arndís Tómasdóttir frá Krabbameinsfélagi Íslands, og flutti hún fræðsluerindi um krabbamein. Einnig kom hún með og kynnti ýmsa fræðslubæklinga sem Krabbameinsfélagið gefur út. Þá var einnig farið yfir starfsemi Ráðgjafarmiðstöðvar Krabbameinsfélags Íslands.
Tveir stjórnarfundir voru haldnir á árinu og nokkrir símafundir, en stjórnin heldur aðallega símafundi vegna fjarlægðar á milli stjórnarmanna. Þrúður Kristjánsdóttir mætti á aðalfund Krabbameinfélags Íslands sem haldinn var í maí 2010.
Við lögðum fram stofnfé í Minningarsjóð Margrétar Oddsdóttur sem stofnaður var í október til að vinna að rannsóknum á brjóstakrabbameini.
Við höfum einnig árlega sent auglýsingu inn á hvert heimili á svæðinu þar sem við kynnum íbúðir fyrir krabbameinssjúka og aðstandendur sem Krabbameinsfélagið á í Reykjavík og að við greiðum dvalarkostnað þeirra sem þar dvelja af okkar starfssvæði. Enn sem komið er hefur það ekki verið nýtt, en þó verið leitað til okkar um upplýsingar og möguleika.
Á árinu seldum við jólakort félagsins, minningarkort, penna og fleira við ýmis tækifæri. Minningarkortin eru jafnframt til sölu í Sparisjóðnum í Króksfjarðarnesi og Aríonbanka í Búðardal og einig hjá stjórnarmeðlimum. Í sumar voru kortin einnig seld í Handverkshúsinu Bolla í Búðardal. Við tókum einnig þátt í að selja skeggnæluna í átakinu Mottumars og seldum við kosningastaðina. Einnig seldum við nokkuð af bleiku slaufunni í október. Jafnframt lýstum við með bleiku upp nokkrar byggingar í Dalabyggð og var það nýmæli hér. Byggingarnar voru Mjólkurstöðin í Búðardal og kirkjan í Saurbæ, til að vekja athygli á átakinu Konur og krabbamein í október. Vakti þetta mikla og jákvæða athygli.
Jóna Valgerður Kristjánsdóttir.