Austfirðir
Stofnað: 21. apríl 1970.
Félagsmenn: 480.
Þjónustumiðstöðin að Búðareyri 15 á Reyðarfirði er rekin í samvinnu við Krabbameinsfélag Austurlands og er opin á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 11-13. Sími 474 1530.
Starfsmaður: Steinunn Sigurðardóttir.
Stjórn kosin á aðalfundi 22. maí 2012
Formaður: Anna Ragnheiður Gunnarsdóttir,
anna.gunnarsd@gmail.com, farsími 869 0810
Ritari: Sólveig Friðriksdóttir, Hólalandi 18, 755 Stöðvarfirði, farsími 865 8184
Gjaldkeri: Iðunn Geirsdóttir, Hjallavegi 4, 730 Reyðarfirði, farsími 820 2336
Meðstjórnandi: Björn Magnússon, Hrafnsmýri 2, 740 Neskaupstað, sími 477 1765
Meðstjórnandi: Unnur Björgvinsdóttir, Sæbergi 13, 760 Breiðdalsvík, sími 475 6738
Meðstjórnandi: Jóhann Sæberg Helgason, Heiðarvegi 20, 730 Reyðarfirði
Meðstjórnandi: Guðmundur R. Gíslason, Valsmýri 6, 740 Neskaupstað
Starfsemi 2011-2012
Aðalfundur. Aðalfundur var haldinn í Þórðarbúð, sal Björgunarsveitarinnar Ársólar á Reyðarfirði, í maí 2011. Fundarmenn voru 19. Gestur fundarins var Tinna Hrönn Smáradóttir iðjuþjálfi og hélt hún fyrirlestur um kosti þess að nota iðjuþjálfun sem endurhæfingu. Alrún Kristmannsdóttir gjaldkeri, frá Eskifirði, og Sigrún Steinsdóttir ritari, frá Dölum í Fákskrúðsfirði, gengu úr stjórn og voru þeim færðar innilegar þakkir fyrir óeigingjarnt starf í þágu félagsins. Sigrún hafði verið félagsmaður frá stofnun og í stjórn í rúman aldarfjórðung. Þorgeir Sæberg gekk einnig úr stjórn þar sem hann var fluttur úr byggðarlaginu. Starfið hjá Krabbameinsfélagi Austfjarða hefur verið nokkuð lifandi á tímabilinu.
Fyrirlestraröð / samverustundir. Í maí var farið af stað með fyrirlestrarröð þar sem vikulega voru fluttir opnir fyrirlestrar um hin ýmsu málefni sem snúa að krabbameinsgreindum og aðstandendum. Áhersla var lögð á að nýta þá sérþekkingu sem til er hér fyrir austan og fengum við til liðs við okkur fjölda frábærra fyrirlesara. Fyrirlestrarnir fóru fram á Reyðarfirði en nokkrir voru endurfluttir á Egilsstöðum. Má segja að mæting hafi verið framar vonum. Hugmyndin með þessari fyrirlestrarröð var sú að ná sérstaklega til þeirra sem væru tilbúnir til það taka þátt í reglulegum samverustundum. Höfum við haldð nokkrar slíkar síðan þar sem við hittumst annan hvern mánudag og virðast þessar stundir vera að festa sig í sessi. Á mánudagsfundinum okkar í febrúar gerðum við tilraun með því að horfa saman á netfyrirlestur af vef Krabbameinsfélags Íslands. Horft var á fyrirlestur Hannesar B. Hannessonar sjúkraþjálfara, „Hreyfing og þjálfun og áhrif krabbameins og meðferðar á líkama og sál“. Fengum við lánaðar glærur af fyrirlestrinum til þess að keyra saman við hljóðið og gekk það ljómandi vel. Sigurjón Rúnarsson sjúkraþjálfari var með okkur og tók þátt í líflegum umræðum sem sköpuðust á eftir. Eftir þessa tilraun sýnist okkur að vel sé hægt að nýta þetta form fyrirlestra úti á landsbyggðinni.
Músíkþerapía. Haldið var áfram að bjóða skjólstæðingum félagsins upp á meðferð hjá Perlu Kolka músíkþerapista. Félagið fékk styrk frá Alcoa árið 2010 til þess að bjóða upp á slíka meðferð og var sá styrkur einnig nýttur 2011.
Hvíldarhelgi á Eiðum. Síðustu helgina í ágúst héldum við hina árlegu hvíldarhelgi að Eiðum, í samvinnu við Krabbameinsfélag Austurlands. Helgin var fullskipuð fólki bæði að austan og Kraftsfélögum af höfuðborgarsvæðinu. Dagskrá helgarinnar var afar skemmtileg og fræðandi, tónlistarmaðurinn KK mætti á svæðið, boðið var upp á svæðanudd, jóga, dans og kyrrðarstund auk þess sem Anna Lóa Ólafsdóttir hélt fyrirlestur um hamingjuna og lífið. Óhætt er að segja að þátttakendur hafi notið samverunnar þessa daga. Er félagið afar þakklátt öllum þeim sem lögðu sitt að mörkum til þess að gera þessa helgi sem besta.
Bleikur október. Í októbermánuði var bleik lýsing víða á Austfjörðum. Haldin var hátíðarstund þegar kveikt var á lýsingu Reyðarfjarðarkirkju þar sem flutt voru ávörp og bleika slaufan næld í hvunndagshetjuna Kristínu Thoroddsen. Svo nokkur dæmi séu nefnd þá var Bleiksárfoss lýstur upp á Eskifirði, Alcoa Fjarðarál lýsti upp Sómastaði og stóra bandið auk fleiri svæða, Byko lýsti upp verslun sína á Reyðarfirði og að venju var Heydalakirkja einnig böðuð bleikri lýsingu.
Styrkir. Sem fyrr hefur félagið styrkt þá sem fá afnot af íbúðunum á Rauðarárstíg og eins hafa einstaka styrkir verið veittir til sjúklinga sem hafa átt um sárt að binda vegna veikinda sinna.
Söfnunarátök. Félagið tók þátt í tveimur söfnunum á tímabilinu. Annars vegar með sölu á rúðusköfum og saumasetti í september 2011, sem gekk afar vel. Hins vegar var það sala á lyklakippum í Mottumars 2012. Er það mat félagsins að það hafi verið vel til fundið að skipta um söluvarning, salan gekk ljómandi vel og mun betur en árinu áður. Seldar voru lyklakippur fyrir um 550 þúsund krónur.
Starfsmannamál þjónustumiðstöðvar. Nýr starfsmaður hefur tekið við störfum af Önnu Ragnheiði Gunnarsdóttur og Iðunni Geirsdóttur. Bjóðum við Steinunni Sigurðardóttur innilega velkomna til starfa. Hún mun starfa í 30% hlutfalli.
Álfheiður Hjaltadóttir og Iðunn Geirsdóttir.